6–8 manna skálar
2 rúmstæði 1½ breið og 2 rúmstæði 1 breið / bekkur.
Foss · Holt · Land · Lindarhvammur · Vindheimar · G-Dvergasteinn
Skipulegðu ferðina
Allt sem þarf til að skipuleggja veiðiferð í Veiðivötn — leyfi, hús, svefnpokapláss og tjaldstæði.
Verðskrá
Veiðileyfi og gisting — hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar.
Tilmæli í Grænavatni: skráið fjölda og áætlaða þyngd/lengd fiska sem sleppt er og sendið á ampi@simnet.is.
Nytjarétthafar fá 50% afslátt á gistingu við netaveiði.
Gisting
Gist er í skálum af þremur stærðum. Lyklar eru afhentir hjá veiðivörðum í Varðbergi við komu.
2 rúmstæði 1½ breið og 2 rúmstæði 1 breið / bekkur.
Foss · Holt · Land · Lindarhvammur · Vindheimar · G-Dvergasteinn
Stóru húsin 6 rúmstæði 1½ breið.
Ampi · Nýberg · Bjalli · Hraunkot · Setur · Sel · Arnarsetur · Hvammur · Vatnaver · Dvergasteinn · Uppsalir · Klettur
Salur (18), L-herbergi (6) og svefnloft. Svefnpokapláss.
Stóri skáli
*Vatnssalerni er í öllum húsum nema gamla Dvergasteini. Panta þarf tjaldstæði og svefnpokapláss fyrirfram.
Dagsleyfi
Á tímabilinu 1. júlí – 18. ágúst er hægt að kaupa dagsleyfi án gistingar. Leyfin gilda frá kl. 7 að morgni til miðnættis.
Panta þarf leyfin fyrirfram, í síðasta lagi kvöldið áður, og ganga frá greiðslu um leið. Veiðimaður byrjar kl. 7 og kemur við í Varðbergi um kl. 9–10 til að sækja leyfið.
Reglur & heilræði
Vötn sunnan Tungnaár
Pantanir og fyrirspurnir fyrir vötn sunnan Tungnaár (við Landmannahelli) eru afgreiddar sérstaklega.